LOSA & LENDA
Yin Yoga - Bandvefslosun - Tónheilun
Service Description
Losa & Lenda er 90 mínútna róleg og nærandi stund þar sem við vinnum með líkamann sem eina heild og fléttum saman bandvefslosun, yin yoga og djúpa slökun með tónheilun. Við byrjum á bandvefslosun með mjúkum nuddboltum. Með hægum hreyfingum, mildum þrýstingi og meðvitaðri öndun vinnum við með mismunandi svæði líkamans og gefum honum tækifæri til að losa um spennu, mýkjast og finna meira rými. Þaðan færum við okkur yfir í yin yoga þar sem við dveljum lengur í rólegum stöðum. Við þvingum ekki líkamann lengra heldur hægjum á, hlustum og leyfum honum að opnast á sínum eigin forsendum. Í lok tímans fær líkaminn að sleppa alveg takinu í djúpri slökun þar sem tónheilun leiðir þig inn í kyrrð og hvíld. Tíminn getur stutt við minni vöðvaspennu og stífleika, aukinn liðleika og hreyfanleika, meiri líkamsvitund og almenna slökun. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg – þú mætir nákvæmlega eins og þú ert. 90 mínútur fyrir þig. Losaðu um. Hægðu á. Lentu í líkamanum. Lovísa ( Lov.E )
Upcoming Sessions
Cancellation Policy
Bókunar-, breytingar- og afpöntunarskilmálar Með bókun eða skráningu er tekinn frá tími eða pláss sérstaklega fyrir þig. Með staðfestingu bókunar samþykkir þú eftirfarandi skilmála. Einkatímar Breytingar eða afpantanir skulu berast með að minnsta kosti **24 klukkustunda fyrirvara**. Við afpöntun eða breytingu með minna en 24 klukkustunda fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að innheimta **50% af verði bókaðs tíma**, enda hafi ekki tekist að ráðstafa tímanum til annars viðskiptavinar. Ef ekki er mætt í bókaðan tíma og engin afpöntun hefur borist áskiljum við okkur rétt til að innheimta **100% af verði tímans**. Námskeið, viðburðir og hópar Skráning tryggir þér ákveðið pláss. Afpantanir eða breytingar skulu berast með að minnsta kosti **14 daga fyrirvara** áður en námskeið, viðburður eða tímabil hefst. Við afpöntun eða breytingu með minna en 14 daga en meira en 7 daga fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að innheimta eða halda eftir **50% af þátttökugjaldi**, enda hafi ekki tekist að fylla plássið. Við afpöntun með **7 daga fyrirvara eða minna**, eða ef þátttakandi mætir ekki, áskiljum við okkur rétt til að innheimta eða halda eftir **allt að 100% af þátttökugjaldi**, enda hafi ekki tekist að fylla plássið. Ef plássið fyllist með öðrum þátttakanda reynum við eftir fremsta megni að bjóða endurgreiðslu eða færslu á annað námskeið eða viðburð. Eftir að námskeið eða tímabil er hafið er þátttökugjald almennt ekki endurgreitt vegna fjarveru eða ef þátttakandi lýkur ekki námskeiðinu. Ekki er tryggt að hægt sé að bæta upp misst námsefni eða tíma nema það sé sérstaklega tekið fram. Veikindi og ófyrirséðar aðstæður Veikindi og önnur ófyrirséð tilvik eru metin sérstaklega. Vinsamlegast hafðu samband eins fljótt og auðið er. Breytingar af okkar hálfu Ef við þurfum að fella niður bókaðan tíma, námskeið eða viðburð verður boðinn nýr tími eða endurgreiðsla, eftir því sem við á. Netbókanir og réttindi neytenda Um netbókanir og önnur fjarsölukaup gilda lögbundin réttindi neytenda. Réttur til að falla frá samningi getur verið mismunandi eftir eðli þjónustunnar, meðal annars ef hún fer fram á ákveðnum degi eða tímabili. Skilmálar þessir takmarka ekki ófrávíkjanleg réttindi samkvæmt lögum.
Contact Details
Bolholt 4, 105 Reykjavík, Iceland
6986665
lovisa@loveyoga.is