top of page
UM OKKUR
UM STARFSEMINA
Lov.E Yoga er heildrænt vellíðunar- og sjálfsræktarrými þar sem lögð er áhersla á tengingu líkama, hugar og sálar.
Starfsemin miðar að því að skapa hlýlegt og öruggt rými þar sem einstaklingar geta staldrað við, ræktað sjálfa sig og unnið að aukinni vellíðan, sjálfsþekkingu og innri ró.
Í boði eru fjölbreyttar leiðir til sjálfsræktar og persónulegra vaxtar, meðal annars jóga, Reiki heilun, tónheilun, markþjálfun og hugvíkkandi samtöl.
Einnig stendur Lov.E Yoga fyrir ýmiss konar námskeiðum og viðburðum sem tengjast vellíðan, sjálfsrækt, núvitund og persónulegum vexti.
Nálgunin er heildræn og byggir á nærveru, mýkt og einstaklingsmiðaðri þjónustu þar sem hver og einn fær rými til að tengjast sjálfum sér og sínum þörfum.
Markmið Lov.E Yoga er að styðja fólk í að efla tengslin við sjálft sig, finna aukið jafnvægi og styrk og skapa rými fyrir jákvæðar breytingar og persónulegan vöxt.
Lovísa Kristín Einarsdóttir.
Heitið Lov.E sameinar bæði nafn hennar, Lovísa Einarsdóttir, og það sem hún vill miðla: kærleika, tengingu og innri orku.
Ferðalag Lovísu inn í heildræna heilun hófst af alvöru árið 2017 þegar hún fór að skoða sjálfa sig og líf sitt af meiri dýpt. Hún vann með eigin reynslu, áföll og þau mynstur sem höfðu mótað hana, og lærði að horfast í augu við meðvirkni og takmarkandi trúarkerfi sem hún hafði tileinkað sér. Í dag hlustar hún á innri röddina – ekki þá sem efast, heldur þá sem styður og leiðir.
Í gegnum árangursríka vinnu með fagfólki, andlega þjálfun og stöðuga sjálfsrækt hefur Lovísa lokið kennsluréttindum í jóga, lært markþjálfun, heilun og ýmis önnur kennaranámskeið. Hún nýtir þessa þekkingu í starfi sínu en einnig til að tengjast eigin kjarna og hefur upplifað að raunverulega er mögulegt að breytast, vaxa og blómstra. Þessi persónulega vegferð hefur veitt henni dýpri skilning og samkennd sem hún nýtir í vinnu sinni í dag.
Árni Jónsson.
Árni er menntaður meðferðarfulltrúi frá Háskólanum á Akureyri í samstarfi við SÁÁ og útskrifaðist árið 2024.
Hann býr yfir bæði faglegri þekkingu og persónulegri reynslu, þar sem hann hefur sjálfur tekist á við fíknisjúkdóm sem þróaðist í kjölfar áfalla. Árið 2016 sneri hann við blaðinu og hefur síðan þá lagt stund á markvissa sjálfsvinnu og uppbyggingu.
Árni hefur lokið námskeiði hjá Hjartasetrinu, vettvangi fyrir hugvíkkandi fræðslu, meðferðarvinnu og sjálfsrækt. Þar leggur hann áherslu á að tileinka sér faglega og ábyrga nálgun við að styðja einstaklinga í undirbúningi og eftirvinnslu tengdri hugvíkkandi reynslu.
Með hlýju, einlægni og djúpum skilningi á umbreytingarferlum leitast Árni við að skapa öruggt rými þar sem fólk getur unnið með eigin reynslu og vaxið á sínum eigin forsendum.
bottom of page