top of page

REIKI HEILUN

Djúpslöknar og vellíðunarmeðferð

1 h
18.000 íslenskar krónur
Bolholt 4. Hæð 4

Service Description

Reiki heilun er japönsk slökunar- og vellíðunarmeðferð sem byggir á léttri snertingu og rólegu flæði. Meðferðin styður við náttúrulegt jafnvægi líkamans og getur hjálpað til við að róa taugakerfið og draga úr streitu og álagi. Margir finna fyrir djúpri slökun, minni kvíða og aukinni ró eftir meðferð. Reiki getur einnig hjálpað til við að losa um spennu í líkamanum, bæta svefn og styðja almenna vellíðan. Reiki er mild meðferð sem gefur þér tækifæri til að staldra við, slaka á og endurhlaða – bæði líkamlega og andlega.


Cancellation Policy

Bókunar- og afpöntunarskilmálar: Með bókun er tekinn frá sérstakur tími fyrir þig. Við biðjum því vinsamlegast um að breytingar eða afpantanir séu tilkynntar með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara. Við afpöntun eða breytingu með minna en 24 klukkustunda fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að innheimta 50% af verði bókaðrar þjónustu. Ef viðskiptavinur mætir ekki í bókaðan tíma og hefur ekki afbókað, áskiljum við okkur rétt til að innheimta 100% af verði bókaðrar þjónustu. Við skiljum að óvæntar aðstæður geta komið upp og metum slík tilvik eftir aðstæðum. Með því að staðfesta bókun samþykkir viðskiptavinur þessa bókunar- og afpöntunarskilmála.


Contact Details

  • Bolholt 4, 105 Reykjavík, Iceland

    6986665

    lovisa@loveyoga.is


bottom of page