top of page

TÓNHEILUN

60 mínútur af nærandi tónum

1 h
6.500 íslenskar krónur
Bolholt 4. Hæð 4

Service Description

Tónheilun Í þessum tíma þá kemur þú þér þægilega fyrir í liggjandi stöðu á dýnunni, í notalegu og öruggu rými. Þar sem þú færðu stund til að hægja á, anda dýpra og færa athyglina inn á við. Með mjúkri leiðsögn fær líkaminn að gefa eftir á meðan tónar, tíðni og hljóð flæða um rýmið. Hér er rými til að leyfa þér að vera, taka á móti og njóta augnabliksins. Með hljóðfærum á borð við kristalskálum, gongi, trommum og öðrum mjúkum tónum er þér boðið í ferð inn á við þar sem hugurinn fær að hægja á og líkaminn fær rými til að mýkjast og slaka á. Tónheilun er dýrmæt stund til að stíga út úr amstri dagsins, hvíla hugann og gefa þér rými fyrir ró, endurnæringu og djúpa slökun. Hver upplifun er einstök – þú þarft einfaldlega að mæta eins og þú ert og leyfa þér að taka á móti því sem stundin hefur upp á að bjóða.  Lovísa & Árni


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Bókunar-, breytingar- og afpöntunarskilmálar Með bókun eða skráningu er tekinn frá tími eða pláss sérstaklega fyrir þig. Með staðfestingu bókunar samþykkir þú eftirfarandi skilmála. Einkatímar Breytingar eða afpantanir skulu berast með að minnsta kosti **24 klukkustunda fyrirvara**. Við afpöntun eða breytingu með minna en 24 klukkustunda fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að innheimta **50% af verði bókaðs tíma**, enda hafi ekki tekist að ráðstafa tímanum til annars viðskiptavinar. Ef ekki er mætt í bókaðan tíma og engin afpöntun hefur borist áskiljum við okkur rétt til að innheimta **100% af verði tímans**. Námskeið, viðburðir og hópar Skráning tryggir þér ákveðið pláss. Afpantanir eða breytingar skulu berast með að minnsta kosti **14 daga fyrirvara** áður en námskeið, viðburður eða tímabil hefst. Við afpöntun eða breytingu með minna en 14 daga en meira en 7 daga fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að innheimta eða halda eftir **50% af þátttökugjaldi**, enda hafi ekki tekist að fylla plássið. Við afpöntun með **7 daga fyrirvara eða minna**, eða ef þátttakandi mætir ekki, áskiljum við okkur rétt til að innheimta eða halda eftir **allt að 100% af þátttökugjaldi**, enda hafi ekki tekist að fylla plássið. Ef plássið fyllist með öðrum þátttakanda reynum við eftir fremsta megni að bjóða endurgreiðslu eða færslu á annað námskeið eða viðburð. Eftir að námskeið eða tímabil er hafið er þátttökugjald almennt ekki endurgreitt vegna fjarveru eða ef þátttakandi lýkur ekki námskeiðinu. Ekki er tryggt að hægt sé að bæta upp misst námsefni eða tíma nema það sé sérstaklega tekið fram. Veikindi og ófyrirséðar aðstæður Veikindi og önnur ófyrirséð tilvik eru metin sérstaklega. Vinsamlegast hafðu samband eins fljótt og auðið er. Breytingar af okkar hálfu Ef við þurfum að fella niður bókaðan tíma, námskeið eða viðburð verður boðinn nýr tími eða endurgreiðsla, eftir því sem við á. Netbókanir og réttindi neytenda Um netbókanir og önnur fjarsölukaup gilda lögbundin réttindi neytenda. Réttur til að falla frá samningi getur verið mismunandi eftir eðli þjónustunnar, meðal annars ef hún fer fram á ákveðnum degi eða tímabili. Skilmálar þessir takmarka ekki ófrávíkjanleg réttindi samkvæmt lögum.


Contact Details

  • Bolholt 4, 105 Reykjavík, Iceland

    6986665

    lovisa@loveyoga.is


bottom of page