VEGURINN HEIM
Available spots
Service Description
4 vikna ferðalag í átt að meiri ró, tengingu og mýkt Stundum köllum við eftir breytingum. En áður en breytingar geta orðið þurfum við oft fyrst að hægja á. Við þurfum að gefa okkur tíma til að hlusta á líkamann, hjartað og þá rödd innra með okkur sem fær svo sjaldan rými í hraða dagsins. Vegurinn heim er fjögurra vikna ferðalag þar sem við hittumst tvisvar í viku í hlýju og öruggu rými. Ferðalagið er fyrir þig sem finnur að þú þarft að staldra við, losa um spennu og streitu, anda dýpra og skapa meira rými innra með þér. Á hverri samveru fléttast saman: 🌿 Bandvefslosandi Yin yoga 🌿 Bandvefsnudd með nddboltum 🌿 Markþjálfun og sjálfsskoðun 🌿 Tónheilun sem fær að flæða út frá orku hópsins hverju sinni Við vinnum ekki að því að laga okkur. Við vinnum að því að hlusta. Hlusta á líkamann. Hlusta á hjartað. Og treysta því að svörin sem við leitum að séu þegar til staðar innra með okkur. Þetta ferðalag er fyrir þig sem: 🤍 Þráir meiri ró í daglegu lífi. 🤍 Vilt losa um spennu sem hefur safnast upp í líkama og huga. 🤍 Vilt mæta þér af meiri mýkt og án dóma. 🤍 Finnur löngun til að tengjast sjálfri/sjálfum þér á dýpri hátt. Þú þarft enga fyrri reynslu. Þú mátt koma nákvæmlega eins og þú ert. 📍 Hvar Bolholt 4 – 4. hæð 📅 Hvenær 14. september – 8. október Mánudaga og fimmtudaga Kl. 17:15–18:30 Lovísa Einarsdóttir ( Lov.E )
Upcoming Sessions
Cancellation Policy
Bókunar- og afpöntunarskilmálar: Með bókun er tekinn frá sérstakur tími fyrir þig. Við biðjum því vinsamlegast um að breytingar eða afpantanir séu tilkynntar með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara. Við afpöntun eða breytingu með minna en 24 klukkustunda fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að innheimta 50% af verði bókaðrar þjónustu. Ef viðskiptavinur mætir ekki í bókaðan tíma og hefur ekki afbókað, áskiljum við okkur rétt til að innheimta 100% af verði bókaðrar þjónustu. Við skiljum að óvæntar aðstæður geta komið upp og metum slík tilvik eftir aðstæðum. Með því að staðfesta bókun samþykkir viðskiptavinur þessa bókunar- og afpöntunarskilmála.
Contact Details
Bolholt 4, 105 Reykjavík, Iceland
6986665
lovisa@loveyoga.is