top of page

VÆRÐ & MILDI

Jóga - Öndun & Tónheilun

1 h 30 min
4.800 íslenskar krónur
Bolholt 4. Hæð 4

Service Description

Opinn hópatími 1x í viku Laugardögum kl 10:00-11:30 Við leyfum öndun, hreyfingu, hljóði og djúpri hvíld að vinna saman og skapa rými þar sem þú getur sleppt takinu og bara verið. Öndunin er rauði þráðurinn Við byrjum hvern tíma á um 10 mínútna djúpri þrefaldri öndun, Dirgha Pranayama. Við leyfum andardrættinum að fylla lungun í þremur „svæðum“ – maga, rifbeinum og efri hluta brjóstkassa. Á útöndun notum við Ujjayi, eða haföndun, sem skapar mjúkt og djúpt hljóð, svolítið eins og öldur sjávar. Með rólegum og meðvituðum andardrætti hægjum við á, slökum á líkamanum og færum athyglina frá ytra áreiti og inn á við. Mýkt og hreyfing Upphitunin er mjúk og róleg og miðar að því að vekja líkamann, koma hita og blóðflæði af stað og losa um þá spennu sem hefur safnast upp yfir daginn. Við mýkjum mjaðmir og hrygg og gefum sérstakt rými fyrir háls, axlir og kvið – svæði þar sem við finnum oft fyrir spennu. Í Raja/Ashtanga-jóga vinna öndun og hreyfing saman. Við förum í gegnum jógastöður í flæði og leyfum Ujjayi-önduninni að fylgja okkur í gegnum iðkunina. Áherslan er ekki á að gera allt fullkomlega, heldur að hlusta á líkamann, styrkjast, mýkjast og skapa meira rými. Hreyfingin verður þannig eins konar hugleiðsla á hreyfingu – hugurinn róast, athyglin færist inn á við og við tengjumst líkamanum betur. Lifandi tónheilun – allan tímann Tónheilunin flæðir með þér í gegnum allan tímann. Lifandi hljóð frá tónheilunarskálum, gongi og ýmsum hljóðfærum vefjast inn í öndunina, hreyfinguna og hvíldina. Hljómurinn fyllir rýmið og gefur þér tækifæri til að hlusta, finna og sleppa takinu. Stundum er hljóðið bjart og létt. Stundum djúpt og jarðtengt. Þú þarft ekkert að gera. Finna · Anda · Leyfa Öndun sem leið inn á við Eftir jógaiðkunina snúum við aftur að önduninni með Anuloma Viloma, eða víxlöndun. Við öndum til skiptis í gegnum hægri og vinstri nös og leyfum andardrættinum að verða hægum, jöfnum og meðvituðum. Við söfnum athyglinni, róum hugann og leyfum líkamanum smám saman að færa sig úr virkni yfir í ró. Djúp hvíld Í lok hvers tíma tekur við 30 mínútna leidd djúpslökun. Þú leggst undir teppi, með kodda og augnpúða. Öndunin verður rólegri. Líkaminn fær að þyngjast. Hugurinn fær að hvílast. Tónheilunin heldur áfram að flæða um rýmið á meðan þú sekkur inn í djúpa hvíld. Hljóðið, öndunin og leiðslan skapa umgjörðina. Hér er rými til að leyfa þér að taka á móti – hvíldinni, hljóðinu, andardrættinum og sjálfum þér. Leiðbeinendur: Gulla Jógakennari Lovísa Tónheilari


Upcoming Sessions


Cancellation Policy

Bókunar-, breytingar- og afpöntunarskilmálar Með bókun eða skráningu er tekinn frá tími eða pláss sérstaklega fyrir þig. Með staðfestingu bókunar samþykkir þú eftirfarandi skilmála. Einkatímar Breytingar eða afpantanir skulu berast með að minnsta kosti **24 klukkustunda fyrirvara**. Við afpöntun eða breytingu með minna en 24 klukkustunda fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að innheimta **50% af verði bókaðs tíma**, enda hafi ekki tekist að ráðstafa tímanum til annars viðskiptavinar. Ef ekki er mætt í bókaðan tíma og engin afpöntun hefur borist áskiljum við okkur rétt til að innheimta **100% af verði tímans**. Námskeið, viðburðir og hópar Skráning tryggir þér ákveðið pláss. Afpantanir eða breytingar skulu berast með að minnsta kosti **14 daga fyrirvara** áður en námskeið, viðburður eða tímabil hefst. Við afpöntun eða breytingu með minna en 14 daga en meira en 7 daga fyrirvara áskiljum við okkur rétt til að innheimta eða halda eftir **50% af þátttökugjaldi**, enda hafi ekki tekist að fylla plássið. Við afpöntun með **7 daga fyrirvara eða minna**, eða ef þátttakandi mætir ekki, áskiljum við okkur rétt til að innheimta eða halda eftir **allt að 100% af þátttökugjaldi**, enda hafi ekki tekist að fylla plássið. Ef plássið fyllist með öðrum þátttakanda reynum við eftir fremsta megni að bjóða endurgreiðslu eða færslu á annað námskeið eða viðburð. Eftir að námskeið eða tímabil er hafið er þátttökugjald almennt ekki endurgreitt vegna fjarveru eða ef þátttakandi lýkur ekki námskeiðinu. Ekki er tryggt að hægt sé að bæta upp misst námsefni eða tíma nema það sé sérstaklega tekið fram. Veikindi og ófyrirséðar aðstæður Veikindi og önnur ófyrirséð tilvik eru metin sérstaklega. Vinsamlegast hafðu samband eins fljótt og auðið er. Breytingar af okkar hálfu Ef við þurfum að fella niður bókaðan tíma, námskeið eða viðburð verður boðinn nýr tími eða endurgreiðsla, eftir því sem við á. Netbókanir og réttindi neytenda Um netbókanir og önnur fjarsölukaup gilda lögbundin réttindi neytenda. Réttur til að falla frá samningi getur verið mismunandi eftir eðli þjónustunnar, meðal annars ef hún fer fram á ákveðnum degi eða tímabili. Skilmálar þessir takmarka ekki ófrávíkjanleg réttindi samkvæmt lögum.


Contact Details

  • Bolholt 4, 105 Reykjavík, Iceland

    6986665

    lovisa@loveyoga.is


bottom of page